Hvað er KnitBox?

KnitBox er frumlegur, hagnýtur og óvenjulegur minjagripur. Kassinn inniheldur prjónauppskrift og íslenskt garn sem til verksins þarf. KnitBox er sjálfbær minjagripur sem krefst þátttöku þess sem hann eignast.

KnitBox er í eigu Big Red Balloon. Fyrir nokkrum árum byrjuðu vinkonurnar Bylgja Borgþórsdóttir and Esther Ösp Gunnarsdóttir að hanna saman prjónauppskriftir undir heitinu Big Red Balloon. Þegar þetta er skrifað hafa þær gefið út 11 uppskriftir, bæði á íslensku og ensku – og nokkrar á norsku. Allar uppskriftirnar má nálgast hjá Ravelry.

Kaupa aðeins

Uppskriftir

Ef þú vilt velja þitt eigið garn og aðeins nálgast uppskriftirnar okkar, kíktu þá endilega við hjá Ravelry.

Hafðu samband

Hafðu endilega samband við okkur ef þú hefur einhverjar spurningar eða athugasemdir varðandi KnitBox.

Big Red Balloon hlaut árið 2019 styrk frá Uppbyggingarsjóði Austurlands til að þróa og markaðssetja KnitBox. Hlutverk sjóðsins er að styrkja menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni sem falla að Sóknaráætlun Austurlands.